top of page

Vegan lasagna með béchamelsósu

  • Elín Sizemore
  • Oct 27, 2024
  • 4 min read

Upprunalega uppskrifin er ekki vegan en við fengum það verkefni í áfanga sem heitir "Sérfæði og matur við sérstök tækifæri" að breyta uppskriftinni svo hún yrði vegan. En hluti af áfanganum snýst um sérfræði og geta aðlagað uppskriftir að ákveðnu sérfæði sem gæti verið sem dæmi vegna ofnæmis, sjúkdóma eða sérstakt mataræði.

Ég notaði haframjólk og hafrarjóma frá oatly en ég spurði vinkonu um ráð hvað væri best að nota og hún mælti með þessu merki þó það væru til betri en væri ekki fáanlegt fyrir austan, því miður. Í staðinn fyrir smjör notaði ég smjörlíki og lasagnaplöturnar frá extra eru eggjalausar. Í staðinn fyrir venjulegt hakk skipti ég út og notaði oumph hakk og kryddaði grænmetið með kryddinu "best á allt" og chili dufti fyrir smá auka bragð í stað beikons.

Ég sleppti því að setja ost yfir þar sem kvöldið eftir var ég að fara í pálínuboð þar sem nokkrar eru á vegan mataræði, en þar kom ein með vegan ost sem var sett yfir þegar það var hitað upp. Þegar ég bakaði það í fyrra skiptið setti ég álpappír yfir í ofninn. En ég ákvað að baka það kvöldið áður svo það þyrfti ekki eins langan tíma í ofninum í pálínuboðinu.

Uppskriftin, bæði af lasagnasósunni og béhamelsósunni er nokkuð tímafrekt og því hentar uppskrifin ekki í kennslu.


Lasagne al forno 

2 msk ólífuolía

1 laukur, fínsaxaður

2 hvítlauksgeirar, pressaðir

1 gulrót, söxuð smátt

400 g Oumph "hakk"

400 g dós af niðursoðnum tómötum

2 msk tómatmauk

¼ tsk rifið múskar

1 lárviðarlauf

Best á allt krydd (eftir smekk)

chili duft (eftir smekk)

Sjávarsalt og nýmalaður pipar

Eggjalausar lasagnaplötur

Vegan ost rifinn



Aðferð

  1. Hitið helminginn af olíunni í stórum potti eða pönnu, Steikið laukinn í um 2 mínútur eða þar til hann er glær. Bætið hvítlauk og gulrótum við, kryddið og steikið áfram í aðrar 2 mínútur.

  2. Takið af pönnunni með gataspaða og setjið til hliðar.

  3. Hitið afganginn af olíunni og steikið Oumph "hakkið" þar til það hefur hitnað í gegn, notið spaða til að losa það í sundur. Bætið grænmetinu á pönnuna og hrærið öllu vel saman með spaða

  4. Setjið tómata og tómatmaukið út á pönnuna og kryddið með múskati og lárviðarlaufi. Kryddið með salt og pipar.

  5. Hitið að suðu, hrærið í og lækkið síðan hitann niður á mjög lágan hita. Látið malla í um 1 klst og 15 mín og hrærið í af og til á meðan.

  6. Þegar um 20 mínútur eru eftir í að láta malla er hægt að byrja á béchamelsósunni.


    Béchamelsósa

    450 ml Oatly haframjólk

    1 laukur, afhýddur, skorinn í tvennt

    2 negulnaglar

    6 piparkorn

    4 steinseljustilkar

    45 g smjörlíki

    30 g hveiti

    2 msk Oatly hafrarjómi

    Salt og nýmalaður pipar

     

    Aðferð

    1.Stingið negulnöglunum í laukhelmingana, einn í hvorn helming

    2. Setjið haframjólk, lauk, piparkorn og steinseljustilka í lítinn pott. Hitið að suðu og látið sjóða við vægan hita í um 10 mínútur og takið pottinn af hellunni.

    3. Látið standa í 20 mínútur áður en að grænmetið er síað frá og því hent. Setjið mjólkina aftur í pottinn

    4. Bræðið smjörlíki við vægan hita í öðrum potti. Hærið hveiti saman við þannig að það verði kekkjalaust. Látið sjóða við vægan hita í 2 mínútur en gætið þess að blandan brúnist ekki. Hitið mjólkina að suðu.

    5. Haldið smjörlíkis- og hveitiblöndunni á lágum hita og bætið mjólkinni saman við í smáum skömmtun. Hrærið stöðugt í á meðan til að tryggja að engir kekkir myndist. Þegar allri mjólkinni hefur verið hellt útí skal sjóða sósuna á mjög lágum hita í 8-10 mínútur til að losna við allt hveitibragð. Hrærið stöðugt í á meðan.

    6. Hrærið hafrarjómanum saman við. Smakkið til með salti og pipar.


    Samsetning

    -Byrjið á að setja 1/3af hakkblöndun sem neðsta lag.

    -Svo 1/3 af béhamelsósu

    -Lasagnaplötur

    -Endurtaka sömu röð

    -Efsta lag á svo að vera hakkblandan, béchamesósa og ostur yfir.


    Aðferð í myndum


    Hráefni og áhöld


    ree

    ree


    ree

    Sakiið grænmetið og pressið hvítlaukinn. Steikið laukinn þangað til hann verður glær, bætið þá gulrótum, hvítlauk og kryddi og steikið í um 2 mínútur. Takið það svo til hliðar.


    ree

    ree

    ree

    Setjið meiri olíu á pönnunna og setjið Oumph "hakkið" og hitið í gegn. Bætið grænmetinu við og hrærið vel.

    Bætið svo við tómötum, tómatmauki, múskati og lárviðarlaufi við og látið malla í 1 og hálfa klst.


    ree

    ree

    ree

    Sósan:


    ree

    Setjið negulnagla í lauk sem búið er að afhýða og skera í tvennt. Setjið svo mjólk, lauk og pipar í pott, látið suðuna koma upp en lækkið svo hitan og hafið í um 10 mínútur.

    ree

    ree

    Takið pottinn til hliðar og látið standa í 20 mínútur áður en grænmetið er síað frá og hent. Setjið þá mjólkina aftur í pottinn.

    Setjið smjör í annan pott og bræðið smjörlíkið við lágan hita, bætiði svo við hveiti og hrærið vel. Svo er mjólkinn bætt MJÖG rólega við og hrært allan tímann.


    ree

    ree

    ree

    Þegar öll mjólkin er komin skal hafa enn á lágum hita í 8-10 mínútur til að losna við hveiti bragðið. Það þarf að hræra stöðugt í pottinum á meðan.

    Þegar það er búið skal hræra rjóma við og smakka til með salti og pipar.


    ree

    Samsetning:

    Fyrstu tvær umferðinar eru eins: Hakkblanda, sósa og lasagnaplötur. Esta lagið er hakk, sósa og svo ostur.


    Bakið í um 30-40 mínútur.


    ree

    Svona leit lasagnað út þegar búið var að baka það með álpappír yfir.

    ree

 
 
 

Comments


Post: Blog2_Post
  • Facebook
  • Twitter
  • LinkedIn

©2019 by Elín Sizemore. Proudly created with Wix.com

bottom of page