top of page

Pavlova

  • Elín Sizemore
  • Feb 26, 2023
  • 2 min read

Næsti réttur er pavlova. Ég hélt alltaf að pavlova væri frá austur Evrópu en svo er víst ekki. Uppruni Pavlova er frá Ástralíu eða Nýja-Sjálandi og nafnið Pavlova er eftir rússneskri ballerínu sem hét Anna Pavlova. Það var ótrúlega einfalt en líka mjög skemmtilegt að gera þessa tertu og hún er svo falleg og rosalega bragðgóð.


Pavlova


Und­ir­búið plötu. Setjið bök­un­ar­papp­ír á plötu og teiknið hring, ann­an 22 cm og minni hring inn í, 13 cm. Hitið ofn í 120 gr. C

4 eggja­hvít­ur

250 gr. syk­ur

1/​4 tsk. salt

2 tsk. maizena-mjöl

1 tsk. hvít­vín­se­dik

Bleik­ur mat­ar­lit­ur


Aðferð:

  1. Setjið eggja­hvít­ur í skál og byrjið að þeyta mjög ró­lega á meðan þið vigtið syk­ur.

  2. Þegar aðeins froða er far­in að mynd­ast bætið þá í hraðann og setjið syk­ur og salt hægt og ró­lega sam­an við.

  3. Bætið svo í hraðann jafnt og þétt al­veg upp og þeytið þar til stíft og glans­andi.

  4. Bætið þá var­lega sam­an við með sleif maizenamjöli og ed­iki.

  5. Takið skeið og setjið mar­engs á hring­inn á papp­ír­inn.

  6. Ef þið viljið lita hann, dýfið prjón í lit og búið til hringi efst í mar­engs­inn svo það mynd­ist marm­ara­áferð.

  7. Setjið inn í ofn og bakið í 2 klst. Slökkvið á ofn­in­um og takið út þegar ofn­inn er orðinn kald­ur. Fínt að slökkva og geyma yfir nótt.

Ofan á:

4-5 dl rjómi

1 tsk. vanillu­drop­ar

2 msk. flór­syk­ur

1 bakki fersk jarðarber


Aðferð:

  1. Setjið krans­inn á kökudisk.

  2. Þeytið rjómann, setjið svo á lægstu still­ingu og setjið vanillu­dropa og flór­syk­ur við.

  3. Skerið jarðarber í bita og hrærið með sleif sam­an við rjómann.

  4. Setjið rjóma-jarðarberja­blöndu á krans­inn.

  5. Skreytið að vild, mér finnst jóla­legt að nota granatepli, rifs­ber, jafn­vel hind­ber og blá­ber. Set nokkr­ar grein­ar af rós­marín (sem kem­ur út eins og greni) og svo dustað yfir með smá flór­sykri.

Aðferð í myndum:


Hráefni og áhöld:



Fyrst þeyta eggjahvítur þangað til það kemur froða og bæta svo við sykri og salti rólega við þangað til stífþeytt og glansandi.




Bæta þá við maizenamjöli og ediki við og hræra varlega við.


Setja maregns á plötu með bökunarpappír og gera hring.



í uppskriftinni stendur að nota bleikan matarlit og gera svona eins og marmara í maregnsinn, en ég ákvað að nota fjólubláan þar sem planið var að setja bláber á kökuna.


Bakaði í 2 klukkutíma og slökkti svo á ofninum og leyfði marengsinum að kólna í ofninum yfir nótt.


Fyrir rjómann og skraut:


Þeytti rjómann og setti svo flórsykur og vanilludropa við með sleif. Á meðan rjóminn var að þeytast skar ég jarðaber í litla bita og blandaði við í endann.



Setti rjómann á hringinn.


Setti jarðaber, bláber og hindber yfir og sigtaði smá flórsykri yfir í endann.






 
 
 

Comments


Post: Blog2_Post
  • Facebook
  • Twitter
  • LinkedIn

©2019 by Elín Sizemore. Proudly created with Wix.com

bottom of page